Main content
main
Skipta á milli raun- og prófunarumhverfis Gegnis
Eftirfarandi aðferð er notuð til að tengjast prófunarumhverfi Gegnis:
1. Lokið biðlaranum ef þið eruð innskráð.
2. Smellið á START --> All Programs --> ALEPH 500 --> ALEPH Administration
3. Þegar innskráningargluggi kemur upp þá smellið á Hætta við
EKKI SLÁ INN NOTANDANAFN/LYKILORÐ
Þá kemur upp eftirfarandi gluggi
4. Smellið á Yes og þá opnast Kerfisstjórnunarþáttur biðlarans
5. Smellið á Stillingar í efstu valmyndalínu og veljið Umsýsla gagnagrunna
6. Smellið á flipann Gagnagrunnar
7. Sláið inn IP-töluna: 217.171.222.123 í reitinn Miðlari í stað kerfi.gegnir.is.
Sláið inn töluna 6992 í reitinn Samskiptaport í stað 6991
- Hakið í reitinn Nota fyrir allt
- Smellið á hnappinn Nota
- Smellið loks á hnappinn Staðfesta (hann birtist þegar hakað hefur verið við Nota fyrir allt)
8. Lokið Kerfisstjórnunarþættinum og skráið ykkur inn í Gegni á venjulegan hátt. Ef tenging næst ekki þá hafið samband við Landskerfi bókasafna - hjalp@landskerfi.is.
9. ATH – MIKILVÆGT: Biðlarinn stillir sig ekki sjálfkrafa á raunumhverfið aftur. Til þess að skipta aftur í raunumhverfi þarf að fara eins að og lýst er undir lið 1-8 að undanskildu því að það þarf að slá inn kerfi.gegnir.is í reitinn Miðlari í stað IP-tölunnar og breyta samskiptaporti aftur í 6991.