Cecilie Gaihede og Þorvaldur Böðvarsson, haust 2019.
Í örnefnaskrá er hægt að skrá örnefni sem lýsingu í texta og sem stafrófslista og eru heitin númeruð með vísan í örnefnalýsingu hvers svæðis/jarðar. Notkun Örnefnaskrár er frekar takmörkuð og inniheldur þetta minnisblað því einungis grunnleiðbeiningar. Fyrir frekara útskýringar er hægt að færa bendilinn á spurningamerkin sem birtast í skráningarsniðinu eða skoða Skráningarhandbók Sarps 2.0 sem er aðgengileg á þjónustuvef okkar á landskerfi.is.
Til að geta skráð örnefni verður fyrst að stofna Jörð eða Minjasvæði og eru örnefnin skráð undir öðru hvoru.
1. Farið er í „Aðföng“ og valið „Örnefni“.
2. Smellt á „Stofna jörð“ eða „Stofna örnefnasvæði“ eftir því við hvort á. Sjá mynd:
Skrá jörð:
Skrá Örnefnasvæði:
Skráningarsnið jarðar
1. Hér er hægt að skoða skráðar örnefnalýsingar á viðkomandi jörð.
2. Valkvætt að tengja örnefnasvæði við jarðarsniðið
3. Skilyrt, tengja verður Stað við sniðið. Sjá mynd:
Skráning örnefna fer ávallt fram undir jörð með því að skráð er örnefnalýsing.
1. Smellt er á „Skrá færslu“ í aðgerðastiku yfirlitsglugga örnefna. Sjá mynd: