Landskerfi bókasafna býður starfsmönnum skólasafna upp á þá þjónustu að mynda lánþegaréttindi vélrænt í kerfinu fyrir nemendur og starfsmenn skólans. Auk þess að mynda lánþegaréttindin er einnig hægt að uppfæra bekkjardeild, netfang og gildistíma skírteinis. Með þessum hætti sparast mikil vinna þar sem ekki þarf að skrá lánþegana handvirkt einn í einu. Netföngum er bætt við þau sem fyrir eru, þ.e.a.s. ekki er skrifað yfir netföngin sem eru inni í kerfinu.
Þau söfn sem óska eftir að nýta sér þessa þjónustu eru beðin um að senda vel frágenginn lánþegalista til Landskerfis bókasafna, annað hvort í gegnum verkbeiðnakerfi [1] eða í tölvupósti á hjalp@landskerfi.is [2].
Kennitala
Nafn
Lánþegastaða
Bekkjardeild
Lánþegategund
Netfang
Sími1
Sími2
Heimasafn
MSL_bókasafn
MSL_hámark_alls
MSL_hámark_virk
Vegna persónuverndarsjónarmiða er rétt að taka fram að innsend skrá er einungis notuð til að lesa nöfn inn í Gegni. Starfsmenn Landskerfis bókasafna eru þeir einu sem hafa aðgang að skránni og henni er eytt að loknum innlestri.