Fréttir frá aðalfundum 2023 [1]
Aðalfundur Landskerfis bókasafna hf. var haldinn í húsakynnum félagsins þann 9. maí síðastliðinn. Á dagskrá voru hefðbundin aðalfundarstörf þar sem farið var yfir ársskýrslu stjórnar, ársreikninga og kosnir voru nefndarmenn í stjórn. Önnur mál sem voru til umfjöllunar voru m.a. innleiðing á nýja bókasafnskerfinu.
Hægt er að nálgast skýrslur stjórnar og fundargerðir hér. [2]
Þriðjudaginn 30. maí var haldinn aðalfundur Rekstarfélags Sarps í Þjóðminjasafni Íslands. Að loknum hefðbundnum aðalfundarstörfum var farið var yfir þann undirbúning og vinnu sem framundan er vegna innleiðingu á nýjum Sarpi. Við lok fundarins var fulltrúi Zetcom GmbH, Dominic Gertsch með kynningu á MuseumPlus, nýja skráningarkerfinu.
Fundargerðir og skýrslur stjórnar eru aðgengilegar hér. [3]
Við þökkum þeim sem mættu kærlega fyrir komuna.
