Samningur um bókasafnstölfræði í höfn [1]
Í gær undirrituðu Hrafnhildur Arnkelsdóttir hagstofustjóri og Sveinbjörg Sveinsdóttir, framkvæmdarstjóri Landskerfis bókasafna samning um gagnaskil vegna opinberrar hagskýrslugerðar um bókasafnstölfræði.
Samkomulagið felur meðal annars í sér að Landskerfið skilar reglulega gögnum um útlán og notkun safnkosts úr bókasafnakerfinu Gegni til Hagstofunnar. Hagstofan vinnur síðan úr gögnunum og birtir á vefsvæði sínu. Í fréttatilkynningu frá Hagstofunni kom fram fram að "Samkomulagið leggur traustan grunn að samstarfi stofnananna og opnar á möguleika á frekari framþróun á þessu sviði."
Image:

Highlight on frontpage:
1
