Námskeiðsáætlun Gegnis 2026 - 2027 [1]
Námskeiðsáætlun veturinn 2026-2027 fyrir Gegni er tilbúin.
Námskeiðsáætlun fyrir Sarp er væntanleg fljótlega.
Námskeiðsáætlunin fyrir bókasöfn er í megindráttum fjórskipt: Undirstöðunámskeið, námskeið í sérhæfðari verkþáttum, ítarnámskeið fyrir starfsfólk bókasafnanna sem að þessu sinni kallast „Gegnir : Fræðslumolar“ og „Grunnskólar - Gegnir : Fræðslumolar“ og að lokum örnámskeið í afmörkuðum verkþáttum þar sem kafað verður dýpra í kerfið.
Flest námskeiðin eru kennd í fjarkennslu nema námskeið fyrir skrásetjara, sjá nánar í kennsluáætlun.
Það stendur ekki til að leggja land undir fót til að heimsækja safnahópa á landsbyggðinni en hins vegar erum við reiðubúin til að bjóða upp á sértæk eða almenn námskeið fyrir ákveðna hópa ef þess er óskað.
Nánari lýsing:
Undirstöðunámskeið
Í september verður farið í grunnþætti Gegnis með þremur undirstöðunámskeiðum fyrir nýja starfsmenn. Námskeiðin henta einnig til upprifjunar.
- Grunnkynning - Forsíða og leit
- Útlán og lánþegaþjónustur
- Ný aðföng á safni
Athugið að „Grunnkynning – forsíða og leit“ er skyldunámskeið fyrir alla sem nota kerfið. Það fer svo eftir verkefnum starfsmanna hvort nauðsynlegt sé að taka bæði „Ný aðföng á safni“ og/eða „Útlán og lánþegaþjónustur“.
Sérhæfðari verkþættir
Fyrir sérhæfðari verkþætti verður námskeið í bókfræðiskráningu í október, millisafnalánum í nóvember, tímaritahaldi í desember og síðan verður boðið upp á námskeið í að fara dýpra í aðföngin eftir áramót.
Fræðslumolar
Til að Gegnir og tengd kerfi nýtist sem best í daglegu amstri bókasafnanna er nauðsynlegt að ganga í takt við kerfin hverju sinni. Markmiðið með þessum námskeiðum er að kynna nýjungar og breytingar ásamt því að hnykkja á hvernig góðir vinnuferlar og réttar stillingar stuðla að betra og léttara verklagi. Fræðslumolunum er skipt í tvennt. Annars vegar námskeið / kynning sem kallast Gegnir : Fræðslumolar og hins vegar sérhæfðara námskeið fyrir starfsfólk bókasafna í grunnskólum sem kallast Gegnir – Stefnumót við grunnskóla
- Gegnir : Fræöslumolar
Eins og fyrr sagði er markmið námskeiðsins að hnykkja á betra verklagi og miðla upplýsingum um breytingar og nýjungar. - Grunnskólar - Gegnir : Fræöslumolar
Markmiðið með þessu námskeiði er fyrst og fremst að hnykkja á ýmsum atriðum sem gætu auðveldað skólasöfnunum vinnuna í daglegu amstri ásamt fréttum um breytingar og nýjungar í kerfunum. Farið verður dýpra í grunnatriði sem tengjast starfinu á grunnskólasöfnum en námskeiðið verður mótað í samráði við starfsfólk grunnskólabókasafna.
Örnámskeið
Boðið verður upp á nokkur örnámskeið þar sem farið verður dýpra í kerfið og afmarkaðir verkþættir krufnir. Hér má nefna örnámskeið um Rafbókasafnið, tölfræði, ítarleit, leitartrix og að breyta mörgum eintökum með Excel.
Framleiðandi kerfisins vinnur stanslaust að endurbótum á Gegni og nú er komið að nýju viðmóti í eintökum. Í október og nóvember vera haldin námskeið til að kynna þessar breytingar í eintakaviðmótinu. Það er mjög mikilvægt að allt starfsfólk bókasafnanna sæki þessi námskeið.
Möglega bætast við fleiri örnámskeið byggð á breytingum í kerfunum og einnig óskum safnanna.
Skráning á námskeið fer fram á vef Landskerfis bókasafna [3]
Skráning opnast 90 dögum fyrir hvert námskeið. Í skráningarforminu er nauðsynlegt að velja bæði dagsetningu og tíma, þó svo að aðeins sé um einn dag og tíma að ræða, annars koma villuboð og námskeiðsskráningin misferst.
Gangið úr skugga um að staðfestingarpóstur berist.
Athugið að dagsetningar eru settar fram með fyrirvara um breytingar og einnig er áskilinn réttur til að fella niður námskeið ef ekki næst næg þátttaka.
Öll námskeið eru gjaldfrjáls nema námskeið í bókfræðiskráningu.

