Vinnuferli í hverju safni ræður stillingum fyrir útprentun frátekta í skránni ../circ/tab/print.ini
ATH - sumar tölvur eru stilltar á að sýna ekki endingu skrárheita og þá birtast heiti skránna sem ALEPHCOM og PRINT.
Hafið samband við Landskerfi bókasafna ef þið þurfið nánari leiðbeiningar um þessi atriði.
Opnið skrána C:/AL500/CIRC/TAB/PRINT.INI í Notepad.
Í skránni er fjöldi lína en aðeins þarf að breyta tveimur línum til að skilgreina prentun frátekta.
Í dæminu hér fyrir neðan táknar [.....] línur fyrir ofan/neðan sem ekki má eyða eða breyta.
Alls ekki má bæta inn [.....] í töfluna.
ATH: Það verður að skrifa DEVICE-nn og/eða NO-PRINT með stórum stöfum og passa að það lendi nákvæmlega í dálki 6.1 og 6.2 í skránni. Ef það lendir of langt til vinstri eða hægri þá koma annaðhvort tvö útprent og tvö tölvubréf eða þá ekki neitt.
Ef lánþegi hefur ekki netfang þá prentast bara út venjulegt bréf þegar frátekinni bók er skilað. Því er ákveðin hætta á að bókavörður á vakt sjái ekki hvort tölvupóstur hefur farið eða ekki því "póstendingarglugginn" er svo lítill og birtist bara örskotsstund á skjánum. Það má þó alltaf ganga úr skugga um þetta með því að skoða nafn lánþegans á útprentinu; ef þar er skráð netfang þá hefur póstur farið á það. Ef ekkert netfang er skráð þá þarf að hafa samband við lánþegann í síma eða með öðrum hætti.
Það getur þurft að stilla spássíur á útprentinu til að textinn passi betur á strimilinn. Þetta þarf að gera í öllum tölvum sem eru að senda á kvittanaprentarann og virkar þá fyrir öll önnur útprent líka, s.s. útlánakvittanir og útlánayfirlit.
Að stilla spássíu:
Fara alveg út úr Gegni. Opna skrána C:\AL500\ALEPHCOM\BIN\HTMLPRINT.INI í Notepad og fara neðst í hana. Þar eru [Margin] stillingar í millimetrum; setja þær allar niður í 2. Vista svo skrána og ræsa Gegni aftur.