Námskeiðsáætlun veturinn 2016-2017 [1]
Eins og hefð er fyrir þá verður í vetur boðið upp á kynningar og námskeið fyrir starfsmenn aðildarsafna Gegnis og Sarps. Fyrir notendur Sarps er boðið upp á grunnnámskeið, námskeið í skráningu og í umsýslu. Kennsla verður í flestum grunnþáttum Gegnis eins og útlánum, skráningu og millisafnalánum. Einnig verður boðið upp á ítarnámskeið fyrir vana starfsmenn bókasafna sem núna kallast „Nýir tímar, breytt verklag“. Þar verður lögð áhersla á breytingar á vefjum Landskerfis bókasafna ásamt því að skoða valin atriði í starfsmannaaðgangi Gegnis og í leitir.is.
Skoða námskeiðsáætlunina ásamt lýsingum á námskeiðunum [2].
- Nauðsynlegt er að stofna aðgang að þjónustuvefnum áður en mögulegt er að skrá sig á námskeið, sjá nánari upplýsingar [3]. Einnig er hægt að fá aðstoð við skráningu í síma 514 5050.
Sjá lista yfir öll námskeið [4]
Öll námskeið eru ókeypis nema skráningarnámskeið í Gegni.
