Rafbókasafnið er samstarfsverkefni Landskerfis bókasafna hf, Borgarbókasafns Reykjavíkur og annarra almenningsbókasafna. Flestar bækurnar eru á ensku en í sjónmáli er að brátt verði einnig hægt að fá íslenskt efni lánað í Rafbókasafninu.
Rafbókasafnið er að finna á vefslóðinni http://rafbokasafnid.is [1] eða http://rafbókasafnið.is [2]. Rafbókasafnið byggir á OverDrive [3] rafbókaveitunni sem býður bókasöfnum um allan heim samskonar þjónustu.