VIAF samstarfið [1]
Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn og Landskerfi bókasafna hf. taka þátt í VIAF® (Virtual International Authority File) samstarfinu. Í VIAF eru margskonar nafnmyndaskrár sameinaðar í eina nafnmyndaþjónustu sem vistuð er hjá OCLC. Tilgangurinn með þjónustunni er að lækka kostnað og auka gagnsemi nafnmyndaskráa bókasafna með því að sameina og tengja nafnmyndaskrár sem eru mikið notaðar og gera upplýsingar úr þeim aðgengilegar á vefnum.
Endilega farið inn á vefinn viaf.org [2] og skoðið hvað hann hefur upp á að bjóða. Það er hægt að fletta upp á persónum, skipulagsheildum, hugverkum og útfærslum, landfræðiheitum en þó ekki efnisorðum.
Highlight on frontpage:
0