Eitt af mikilvægum verkefnum bókasafnanna er að hreinsa upp gömul vanskil.
Bréf send til bókasafnanna:
Hvers vegna þarf að hreinsa upp gömul vanskil?
Útlánaupplýsingar yfir gömul vanskil verða ekki fluttar yfir í nýtt kerfi. Hins vegar verða öll eintök flutt yfir í nýtt kerfi og þá lítur út fyrir að löngu týnd eintök séu komin upp í hillu. Það gefur lánþegum ranga mynd af safnkostinum og skapar óþarfa vinnu og vandræði fyrir starfsmenn sem eyða dýrmætum tíma í að leita að eintökum sem alls ekki eru til á safninu.
Getur Landskerfi bókasafna ekki gert þetta vélrænt?
Nei, því miður þá er það ekki hægt. Þessi vinna verður að gerast handvirkt á hverju safni fyrir sig.
Hvar get ég nálgast lista yfir gömul vanskil í mínu safni?
Á hverjum sunnudegi verður til ný útgáfa af vanskilalistum yfir gögn sem eru komin meira en 1 ár frá skiladegi. Listarnir eru aðgengilegir undir „Skráarlisti“ í bleika flipanum í útlánaþætti. Heiti skráarinnar er SAFNKÓÐI_vanskil_1ar.
Sjá nánari leiðbeiningar á þjónustuvef Landskerfis bókasafna undir Gegnir > Listar og rukk > Prenta út lista yfir útlán, vanskil og rukk (https://www.landskerfi.is/leidbeiningar/gegnir/listar-og-rukk/prenta-ut-lista-yfir-utlan-vanskil-og-rukk [3])
Hvernig eyði ég gömlum vanskilum?
Ef ekki gengur að innheimta gömul vanskil frá lánþegum, þá þarf að eyða eintakinu alveg út úr kerfinu.
Athugið sérstaklega:
Það er ekki nóg að merkja útlánið sem "Týnt" eða "Talið skilað". Eintakið telst samt vera í vanskilum ef þetta er gert!
Tenglar
[1] https://landskerfi.is/sites/default/files/public/gomul_vanskil_bref_09102019_-_fyrir_vef.pdf
[2] https://landskerfi.is/sites/default/files/public/lokaskjal_itrekun_gomul_vanskil_10012020.pdf
[3] https://www.landskerfi.is/leidbeiningar/gegnir/listar-og-rukk/prenta-ut-lista-yfir-utlan-vanskil-og-rukk
[4] https://www.landskerfi.is/leidbeiningar/gegnir/skraning-og-eintok/eyda-eintaki