Nýi hugbúnaðurinn (Primo VE) sem leitargáttin leitir.is byggir á býður upp á möguleika á að setja upp sérstaka leitarsíðu fyrir söfn sem það vilja. Þetta getur auðveldað lánþegum að finna efni viðkomandi safns. Slíkar síður hafa þegar verið settar upp fyrir almenningsbókasöfnin í ALM safnakjarnanum og Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn í LBS safnakjarnanum. Leitarsíður fyrir aðra safnakjarna verða settar upp fyrir haustið. Hver safnakjarni hefur eigin auðkennislit. Sérstök URL fylgja hverri þessara síða, þau eru þannig uppbyggð að forskeyti er sett fyrir fram leitir.is (dæmi: lbs.leitir.is, amt.leitir.is).
Leitir.is verður áfram aðalleitargáttin og þar er hægt að leita í öllu efni rétt eins hefur verið hægt í Leitir hingað til. Á sértæku leitarsíðunum sem afmarkast við safn er leitað í afmarkaðra mengi gagna.
Svona eru leitarmöguleikar í leitir.is:
Almenningsbókasöfnum býðst að bjóða lánþegum sínum upp á nota vefsíður síns safns og/eða almenningsbókasafna í tilteknum landshluta.
Í flestum tilfellum er á hverri síðu boðið upp á þrenns konar leit.
Leitin er afmörkuð með neðangreindum hætti: