Hlutverk efnisorðaráðs er að vera samstarfsvettvangur Landskerfis bókasafna og bókasafna landsins varðandi efnisorðagjöf og gerð efnisorðalykils (thesaurus) sem byggist á Kerfisbundnum efnisorðalykli fyrir bókasöfn og upplýsingamiðstöðvar, 3. útg. 2001. Samræmd notkun efnisorða í Gegni er ein af meginstoðum gæðastjórnunar bókfræðigrunns Gegnis ásamt því að stuðla að samræmdum leitarniðurstöðum í Gegni og leitir.is. Öllum sem gefa efnisorð ber að hlíta þeim reglum sem efnisorðaráð setur.
Efnisorðaráð Gegnis er skipað fjórum sérfræðingum á sviði efnisorða, skv. erindisbréfi [1]. Landskerfi bókasafna skipar þrjá fulltrúa að fenginni tillögu frá skráningarráði Gegnis. Formaður efnisorðaráðs er ritstjóri efnisorða Gegnis. Hann er tilnefndur af Landsbókasafni Íslands – Háskólabókasafni.
Tekið er við tillögum um ný efnisorð á netfanginu efnisordarad@landskerfi.is [2]
Efnisorðaráð | |
---|---|
Ragna Steinarsdóttir, formaður | Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn |
Guðný Ragnarsdóttir | Stofnun Árna Magnússonar |
Þórdís T. Þórarinsdóttir |
Ár [3] | Fundargerðir |
---|---|
2004 | 1. fundur efnisorðaráðs, 30. apríl 2004 [4] |
2004 | 2. fundur efnisorðaráðs, 28. maí 2004 [5] |
2004 | 3. fundur efnisorðaráðs, 24. september 2004 [6] |
2004 | 4. fundur efnisorðaráðs, 29. október 2004 [7] |
2005 | 16. til 40. fundur efnisorðaráðs, 2005-2006 [8] |
Tenglar
[1] https://landskerfi.is/sites/default/files/erindisbref_efnisordarad_2007.pdf
[2] mailto:efnisordarad@landskerfi.is
[3] https://landskerfi.is/print/99?order=name&sort=desc
[4] https://landskerfi.is/file/5377/download?token=j5YoZdSi
[5] https://landskerfi.is/file/5378/download?token=lkOl8ino
[6] https://landskerfi.is/file/5379/download?token=tTnR5uQg
[7] https://landskerfi.is/file/5380/download?token=dj0NJ5_F
[8] https://landskerfi.is/file/5395/download?token=voCJOoOj
[9] https://landskerfi.is/kerfin/gegnir/efnisordarad/fundir-efnisordarad-yfirlit