Bókasafnskerfið Alma og leitargáttin Primo VE frá Ex Libris verða arftakar núverandi kerfa Aleph/Primo. Innleiðing Alma hófst í lok árs 2020 og er áætlað að nýja kerfið fari í loftið í byrjun júní 2022. Fimm megin fasar tengjast grunnuppsetningu og gögnum:
Alma er veflægt og nútímalegt bókasafnskerfi sem mikil reynsla er komin á. Primo VE er nýrri lausn en byggir á eldri fyrirmynd, Primo. Alma og Primo VE eru skýjalausnir sem hýstar eru í gagnaveri Ex Libris í Amsterdam. Bókasöfnin munu fá aðgang að kerfunum í gegnum netið (Saas – Software as a Service).
Auk þessarar grunnþátta eru fjölmörg önnur verkefni hluti að innleiðingunni eins og að þýða kerfið yfir á íslensku, samþætta kerfið við þjóðskrá, Island.is, nemendakerfi, greiðslukerfi, o.s.frv. Lokahnykkurinn í innleiðingunni er vissulega að kenna öllum starfsmönnum safnanna á kerfið.
Á vef Ex Libris [1] eru stuttar kynningar á hinum ýmsu þáttum Alma í Getting to know Alma [2]. Í Alma Essentials [3] er svo farið dýpra í hvern þátt.
Nánari upplýsingar um framgang verkefnisins er að finna á staða verkefnsins [4].
Tenglar
[1] https://knowledge.exlibrisgroup.com/Alma/Training
[2] https://knowledge.exlibrisgroup.com/Alma/Training/Getting_To_Know_Alma/Getting_to_Know_Alma_-_English
[3] https://knowledge.exlibrisgroup.com/Alma/Training/AlmaEssentials/Alma_Essentials_-_English
[4] https://landskerfi.is/kerfin/innleiding-almaprimo-ve/stada-verkefnisins/stada-verkefnisins