- Heim
- Öll námskeið
- Námskeið í skráningu bókfræðiupplýsinga
Main content
main
Námskeið í skráningu bókfræðiupplýsinga
Fjarfundur í gegnum Teams og staðfundur.
Skráðir þátttakendur fá sendan hlekk þegar nær dregur.
Athugið: Þetta er grunnnámskeið fyrir þá sem eru ekki með skráningarheimild í Gegni.
Þetta skráningarnámskeið verður haldið á vegum Landsbókasafns Íslands og Landskerfis bókasafna. Að þessu sinni verður ekki gerð forkrafa um að þátttakendur hafi lokið háskólaprófi í bókasafns og upplýsingafræði. Hins vegar þurfa þátttakendur að hafa lokið og staðist að lágmarki námskeiðinu Skipulag upplýsinga (UPP112F) eða námskeiðum í skráningu (UPP101F) og lyklun/flokkun (UPP202F) í bókasafns- og upplýsingafræði frá Háskóla Íslands, eða sambærilegum námskeiðum í skráningu, lyklun og flokkun samkvæmt fyrri kennsluskrám. Auk þessa er skilyrði fyrir að vera starfandi hjá aðildarsafni Gegnis.
Högun námskeiðsins er breytt að því leyti að bæði er lagt upp með fjarfundi (teams) og staðnám. Í gegnum tíðina hafa þessi námskeið verið þrír dagar í staðnámi en núna verður það brotið upp og námsefni fyrstu tveggja daganna verður í fjarkennslu á teams og dreift á fleiri daga, en seinasti dagurinn verður verkleg kennsla í staðnámi. Tvær mismunandi dagsetningar eru í boði fyrir staðnámshlutann, en hver nemandi mætir aðeins á annarri dagsetningunni.
Á námskeiðinu verður eingöngu fjallað um bókfræðilega skráningu og skráningarþátt Gegnis.
Aðeins þeir sem hafa sótt námskeið í skráningarþætti Gegnis geta fengið skráningarheimild í kerfið.
Drög að dagskrá:
- Þriðjudagur 17. Janúar, 09:00-12:00. (fjarfundur)
- Skráningarumhverfið, kerfishögun og hjálpargögn
- MARC sniðið, Handbók skrásetjara
- Miðvikudagur 18. janúar, 10:00-12:00. (fjarfundur)
- Kynning á lýsigagnaritilinum í Gegni
- Fimmtudagur 19. janúar, 10:00-12:00. (fjarfundur)
- Hagnýtar upplýsingar, skráning
- Frumskráning og færsluveiðar
- Mánudagur 23. janúar, 09:00-16:00. Verklegar æfingar hjá Landskerfi bókasafna - Hópur 1 (staðfundur)
- Vinnustofa í skráningu – verklegar æfingar
- Nafnmyndir
- Mánudagur 06. febrúar, 09:00-16:00. Verklegar æfingar hjá Landskerfi bókasafna - Hópur 2 (staðfundur)
- Vinnustofa í skráningu – verklegar æfingar
- Nafnmyndir
Athugið: Hverju aðildarsafni Gegnis er heimilt að senda einn starfsmann endurgjaldslaust á skráningarnámskeið en eftir það er námskeiðsgjaldið kr. 52.663. með vsk. á hvern þátttakanda.