Main content
main
Samstarfsaðilar
Innlendir samstarfsaðilar
Helstu samstarfsaðilar Landskerfs bókasafna hérlendis eru íslensk bókasöfn og eigendur þeirra.
Að auki er mikið samstarf við eftirtalda
- Alefli sem er notandahópur Gegnis
- Landsaðgang að rafrænum áskriftum, hvar.is en aðgangur að áskriftunum er veittur í gegnum leitir.is
- Miracle og Kann aðstoða við forritun og gangavinnslur.
- Fjárstoð sér um reikningagerð auk bókhalds- og uppgjörsþjónustu
- Rekstrarfélag Sarps sem er eigandi menningarsögulega gagnasafnsins Sarpur en Landskerfið hefur með höndum rekstur félagsins og gagnasafnsins
Erlendir samstarfsaðilar
Ex Libris, a ProQuest Company sem er í eigu Clarivate samstæðunnar er fyrirtækið sem framleiðir og þjónustar skýjalausnirnar Alma og Primo VE og undirliggjandi gagnagrunna. Bókasafnakerfin Gegnir og Leitir.is byggja á Alma og Primo VE.
Bókasöfn og bókasafnasamlög sem styðjast við vörur frá Ex Libris í starfsemi sinni hafa með sér samstarf í gegnum Igelu notendafélagið.
SVUC / NNG (Scandinavian Virtual Union Catalogue / Nordic Network Group) er samstarfsvettvangur þjónustuaðilda á Norðurlöndunum og í Eistlandi sem hafa með höndum rekstur og viðhald samskráa bókasafna. Stofnað var til þessa samstarfs til að stuðla að samnýtingu bókfræðiupplýsinga. Síðar meir hefur samstarfið þróast í vettvang til að miðla og stuðla að kerfislegum umbótum og samfara því var nafni hópsins breytt í Nordic Network Group.
horizontal
print-links
