Main content
main
13 ný almenningsbókasöfn koma inn í Rafbókasafnið 1. júní 2017
01.06.2017
Rafbókasafnið var opnað 30. janúar 2017. Hingað til hafa einungis lánþegar Borgarbókasafnsins getað nýtt sér efni á þessu nýja bókasafni en frá og með 1. júní mun þjónustan ná til lánþega þrettán annarra almenningssafna vítt og breitt um landið. Söfnin sem koma inn í Rafbókasafnið að þessu sinni eru:
- Amtsbókasafnið á Akureyri
- Bókasafn Akraness
- Bókasafn Árborgar
- Bókasafn Garðabæjar
- Bókasafn Hafnarfjarðar
- Bókasafn Héraðsbúa
- Bókasafn Kópavogs
- Bókasafn Mosfellsbæjar
- Bókasafn Reykjanesbæjar
- Bókasafn Seltjarnarness
- Bókasafn Vestmannaeyja
- Bókasafnið Ísafirði
- Menningarmiðstöð Hornafjarðar
Viðkomandi bókasöfn veita lánþegum sínum allar nánari upplýsingar um Rafbókasafnið.
Í haust mun samstarf við Rafbókasafnið standa öllum almenningsbókasöfnum í Gegni til boða.
Rafbókasafnið er langþráð viðbót í bókasafnaflóruna. Líkt og á öðrum bókasöfnum er safnkosturinn fjölbreyttur, en þar má finna skáldverk, fræðirit og rit almenns efnis, bæði nýtt efni og klassík. Meginhluti efnisins er á ensku og í formi rafbóka, en hlutur hljóðbóka fer ört vaxandi, enda njóta þær sérlegra vinsælda. Vonir standa til að á þessu ári muni íslenskar raf- og hljóðbækur bætast í hópinn.
Rafbækurnar má ýmist lesa á vef safnsins, rafbokasafnid.is, eða á snjalltækjum í gegnum Overdrive-appið. Þannig geta lesendur notað hvert tækifæri til að lesa sínar bækur, í síma eða á spjaldtölvu, hvar sem er og hvenær sem er. Í raun þýðir þetta að lesendur hafa heilt bókasafn í vasanum. Rafbókasafnið er alltaf opið og þar eru engar sektir, því kerfið sér sjálft um að skila bókum þegar lánstími er útrunninn.
Vefslóð Rafbókasafnsins er http://rafbokasafnid.is
Gleðilega sumarlesningu!