2

Main content

main

Aðalfundur Aleflis, notendafélags Gegnis

Fyrsti aðalfundur Aleflis, sem er notendafélag Gegnis, var haldinn föstudaginn 3. október 2003. Þar var kosin ný stjórn fyrir félagið og skipa hana þær Astrid M. Magnúsdóttir, Ingibjörg Steinunn Sverrisdóttir og Oddný Björgvinsdóttir, auk Margrétar Björnsdóttur sem er varamaður. Á fundinum var ný vefsíða félagsins opnuð: www.alefli.is. Í lok fundarins héldu starfsmenn Landskerfis bókasafna erindi til að greina frá stöðunni í innleiðingu Gegnis og segja frá þróun kerfisins eins og henni var lýst á notendaráðstefnu Ex Libris í Vín fyrir hálfum mánuði. Nálgast má glærurnar með meginatriðum þessara fyrirlestra á námsgagnasíðunni.

horizontal

fblikebutton_dynamic_block