2

Main content

main

Fjöldi námskeiða í boði

Undanfarnar fjórar vikur hefur mikil námskeiðalota staðið yfir hjá Landskerfi bókasafna. Höfum við kennt 15 námskeið á þeim tíma eða tæp fjögur námskeið í viku að jafnaði. Mikil eftirspurn hefur verið eftir kennslu, bæði vegna nýrra aðildarsafna og vegna breytinga á notendaviðmóti kerfisins. Á annað hundrað sæti voru nýtt á námskeiðunum, sem haldin voru í Reykjavík, á Akureyri og á Egilsstöðum. Þó að þessari miklu lotu sé að ljúka verða fleiri námskeið í boði fyrir jól og þurfa þeir sem vilja fá upplýsingar um þau að skrá sig á póstlista okkar. Námskeið hjá okkur eru ætluð starfsmönnum aðildarsafna og er námskeiðsgjaldið oftast innifalið í föstu þjónustugjaldi viðkomandi safns.

horizontal

fblikebutton_dynamic_block