2

Main content

main

Fréttir frá aðalfundi Landskerfis bókasafna

Aðalfundur Landskerfis bókasafna hf. var haldinn 25. maí 2011. Störf fundarins voru með hefðbundnum hætti. Á fundinn mættu fulltrúar 6 hluthafa sem eiga samanlagt 76,71% hlutafjár í félaginu.

Hér má nálgast fundargerð aðalfundar. Skýrsla stjórnar fyrir síðasta starfsár er væntanleg á vefinn.

Stjórn félagsins var endurkjörin á fundinum. Starfsárið 2011-2012 sitja því í stjórn: Anna Torfadóttir borgarbókavörður, Árni Sigurjónsson skrifstofustjóri forsetaembættisins, Ingibjörg Steinunn Sverrisdóttir landsbókavörður og Karl Guðmundsson bæjarritari Akureyrarbæjar. Varamenn eru: Hulda Björk Þorkelsdóttir forstöðumaður Bókasafns Reykjanesbæjar og Eiríkur Þorláksson, sérfræðingur á skrifstofu menningarmála hjá menntamálaráðuneytinu.

Stjórnin hefur kjörið Árna Sigurjónsson sem formann sinn.

horizontal

fblikebutton_dynamic_block