2

Main content

main

Fréttir frá aðalfundi Landskerfis bókasafna 2013

Aðalfundur Landskerfis bókasafna hf. var haldinn 24. maí 2013. Störf fundarins voru með hefðbundnum hætti. Á fundinn mættu fulltrúar 9 hluthafa sem eiga samanlagt 84,14% hlutafjár í félaginu.

Hér má nálgast skýrslu stjórnar fyrir síðasta starfsár og fundargerð aðalfundar.

Heimilisfang Landskerfis bókasafna er nú Katrínartún 2 (áður Höfðatún 2).

Stjórn félagsins var endurkjörin á fundinum. Starfsárið 2013-2014 sitja því í stjórn: Árni Sigurjónsson skrifstofustjóri forsetaembættisins, Ingibjörg Steinunn Sverrisdóttir landsbókavörður, Karl Guðmundsson verkefnastjóri hjá Akureyrarbæ og Pálína Magnúsdóttir borgarbókavörður. Varamenn eru: Hulda Björk Þorkelsdóttir forstöðumaður Bókasafns Reykjanesbæjar og Eiríkur Þorláksson, sérfræðingur á skrifstofu menningarmála hjá mennta- og menningarmálaráðuneyti.

Stjórnin hefur kjörið Árna Sigurjónsson sem formann sinn.

 

 

 

horizontal

fblikebutton_dynamic_block