2

Main content

main

Gegnir – Árslokatölfræði fyrir árið 2013

Tölfræði fyrir Gegni vegna ársins 2013 er nú aðgengileg á þjónustuvef Landskerfis bókasafna, sjá Talnagögn um árið 2013. Útlán drógust töluvert saman á milli áranna 2012 og 2013 eða um 4.7%. Þessi samdráttur hófst árið 2010 en fram að þeim tíma var aukning útlána á milli ára umtalsverð. Erfiðara er að túlka tölur um fjölgun eintaka og titla þar sem þessar tölur hækka alla jafnan á milli ára. Þó er ljóst að skráðum titlum heldur áfram að fjölga hlutfallslega meira en undanfarin ár á meðan að það dregur úr hlutfallslegri fjölgun eintaka. Óhætt er að fullyrða að það skýrist af því að bókfræðifærslum fyrir rafrænt efni hefur verið hlaðið vélrænt inn í kerfið í mun meira mæli en áður, sjá nánar í fréttatilkynning árslokatölfræði 2013.

 

 

horizontal

fblikebutton_dynamic_block