2

Main content

main

Gegnir – Árslokatölfræði fyrir árið 2014

Tölfræði fyrir Gegni vegna ársins 2014 er nú aðgengileg á þjónustuvef Landskerfis bókasafna, sjá Talnagögn um árið 2014.

Útlán héldu áfram að dragast saman á milli áranna 2013 og 2014. Þessi samdráttur hófst árið 2010 en fram að þeim tíma var aukning útlána á milli ára umtalsverð. Erfiðara er að túlka tölur um fjölgun eintaka og titla þar sem þessar tölur hækka alla jafnan á milli ára. Þó er ljóst að hlutfallsleg fjölgun skráðra titla hefur dregist saman síðastliðið ár miðað við árin á undan. Skýringin á því er fyrst og fremst að minna var um að bókfræðifærslum / titlum væri hlaðið vélrænt í Gegni heldur en árin á undan, sjá nánar í Fréttatilkynning um árslokatölfræði 2014.

horizontal

fblikebutton_dynamic_block