2

Main content

main

Gegnir á ensku

Eins og notendur Gegnis hafa ef til vill séð, hefur ensk útgáfa vefjarins hingað til aðeins verið aðgengileg í upprunalegu viðmóti framleiðanda. Nú er hins vegar búið að samræma enska viðmótið við það íslenska. Hægt er að opna ensku gerðina með því að smella á breska fánann ofarlega til hægri á Gegni.

Stöðugt er unnið að þróun og betrumbótum á vefviðmóti Gegnis með það að markmiði að gera hann aðgengilegri og þægilegri í notkun. Senda má athugasemdir um vefviðmótið til vefstjóra á netfangið harparos@landskerfi.is.

horizontal

fblikebutton_dynamic_block