2

Main content

main

Gegnir í nýrri útgáfu

Nú stendur fyrir dyrum að uppfæra bókasafnskerfið Gegni og hefur nýja útgáfan númerið 16 frá hendi framleiðandans. Áætlað er að taka nýju útgáfuna í notkun mánudaginn 17. júlí 2006. Vegna kerfisvinnu verður Gegnir lokaður vikuna 9.-16. júlí. Starfsmenn bókasafna þurfa að kynna sér vel að hvaða marki hægt er að nota kerfið á lokunartímanum, hvernig haga þarf uppsetningu nýs biðlara og fleira sem hér er lýst í aðgerðaáætlun okkar (sjá einnig pistil um "ótengd" útlán). Lokun kerfisins þessa daga er óhjákvæmileg og biðjumst við velvirðingar á henni en kerfið verður betra á eftir. Sum bókasöfn munu hafa lokað vikuna sem kerfisskiptin ganga yfir.

horizontal

fblikebutton_dynamic_block