2

Main content

main

Gegnir verður lokaður helgina 23. - 24. janúar

Vegna kerfisvinnu verður Gegnir lokaður helgina 23. - 24. janúar næstkomandi. Kerfinu verður lokað eftir hefðbundinn opnunartíma safnanna, kl. 19:15 föstudagskvöldið 22. janúar. Áætlað er að kerfið verði opnað aftur kl. 18.00 á sunnudaginn, 24. janúar.

Lokunin nær bæði til gegnir.is og starfsmannaaðgangs Gegnis, auk sjálfsafgreiðsluvéla. Söfnunum sem eru með opið um helgina er bent á að nota ótengd útlán.

Ástæða kerfisvinnunnar er lyklun á bókfræðigrunni Gegnis ásamt umfangsmiklum lagfæringum á bókfræðifærslum í Gegni. Þessi vinna mun bæta vinnuumhverfi þeirra sem skrá í Gegni og einnig verða leitir í gagnagrunninum skilvirkari.

horizontal

fblikebutton_dynamic_block