Main content
Fréttir
main
Mikill áhugi reyndist vera til staðar á kynningu á SFX krækjukerfinu fyrir almennings- og framhaldsbókasöfn, sem Landskerfi bókasafna heldur 28. febrúar í samvinnu við Landsaðgang og Bókasafn Háskólans í Reykjavík. Markmið kynningarinnar er að kynna hvernig nota má SFX kerfið til að krækja í gögn í Landsaðgangi um rafræna gagnagrunna og tímarit, hvar.is. Vegna mikillar eftirspurnar hefur verið ákveðið að endurtaka kynninguna síðar. Nánari upplýsingar verða sendar út á póstlistann þegar nær dregur.
Hafin er vinna við uppfærslu Gegnis úr útgáfu 18 í útgáfu 20. Vinnan fer fram í prófunarumhverfi Gegnis og hefur því ekki áhrif á daglegan rekstur kerfisins. Áætlanir gera ráð fyrir að uppfærsla í raunumhverfi fari fram í viku 33 eða dagana 15.-19. ágúst næstkomandi. Gera má ráð fyrir að Gegnir verði lokaður að mestu á meðan á uppfærslunni stendur. Nánari upplýsingar verða sendar út á póstlista Landskerfis á næstu vikum.
Tölfræði fyrir Gegni vegna ársins 2010 er nú aðgengileg á þjónustuvef Landskerfis bókasafna, sjá Talnagögn um árið 2010. Þegar litið er á heildartölur fyrir Gegni sést jafn vöxtur kerfisins þótt heldur hafi hægt á fjölgun útlána.
Fundargerð Skráningaráðs Gegnis frá 57. fundi er nú aðgengileg á síðu skráningarráðs.
Sveitarfélagið Hörgársveit er komið í hóp hluthafa í Landskerfi bókasafna hf. Hörgársveit rekur Bókasafn Þelamerkurskóla.
Landskerfi bókasafna býður nú upp á sérhannað námskeið með þarfir sérfræðibókasafna í huga. Markmið námskeiðsins er að kynna bókasafnskerfið, gegnir.is og SFX krækjukerfið út frá þörfum sérfræðibókasafna.
Náttúrufræðihópurinn og stjórn Aleflis lögðu Landskerfi bókasafna lið við að móta dagskrá námskeiðsins.
Námskeiðsskráning fer fram á vef Landskerfis bókasafna.
Upplýsingar um gjaldskrá Landskerfis bókasafna á árinu 2011 hafa nú verið gerðar aðgengilegar á heimasíðu.
Starfsmenn Landskerfis bókasafna óska samstarfsfólki og landsmönnum öllum gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári. Þökkum ánægjulegt samstarf á árinu sem er að líða.
Skrifstofa Landskerfis bókasafna verður lokuð 24. og 31. desember.
Fundargerð Skráningaráðs Gegnis frá 56. fundi er nú aðgengileg á síðu skráningarráðs.