2

Main content

main

Hýsingarsamningur við Þekkingu

Í byrjun mars 2012 var undirritaður samningur milli Landskerfis bókasafna hf. og Þekkingar ehf. um hýsingu og rekstur Gegnis og leitir.is til næstu fjögurra ára. Þekking átti hagstæðasta tilboðið í verkið í örútboði innan rammasamnings ríkisins RK 03.06 Hýsing og rekstrarþjónusta. Kerfin verða flutt frá Nýherja til Þekkingar í aprílmánuði og er undirbúningur þegar hafinn. Verk- og tímaáætlun verður send út þegar nær dregur.

Samninginn undirrituðu Stefán Jóhannesson fyrir hönd Þekkingar og Sveinbjörg Sveinsdóttir fyrir hönd Landskerfis bókasafna.

horizontal

fblikebutton_dynamic_block