2

Main content

main

Kerfisskiptum Fengssafna fagnað

Föstudaginn 16. apríl var haldið hóf til að fagna kerfisskiptum Fengssafna sem tóku gildi 5. apríl síðastliðinn. Með kerfisskiptunum var stórt skref stigið í sögu Gegnis, enda eru nú um það bil 100 söfn tengd honum. Hófið var haldið í Grófarhúsi, Tryggvagötu 15 í Reykjavík, og var þangað boðið forstöðumönnum allra Fengssafna, þar á meðal skólasafna, skráningarráði Gegnis og fleiri samstarfsaðilum okkar vegna þessa verkefnis. Myndin var tekin við þetta tækifæri og á henni sjást Árni Sigurjónsson, Hörður Sigurgestsson, Þórólfur Árnason og Anna Torfadóttir.

horizontal

fblikebutton_dynamic_block