2

Main content

main

Kynning á nýja kerfinu

Miðvikudaginn 30. apríl næstkomandi verður nýi Gegnir kynntur hjá Landskerfi bókasafna. Kynningin er almenns eðlis og hentar starfsmönnum bókasafna án tillits til hvaða kerfi safnið notar nú. Hún verður haldin í húsakynnum Landskerfis bókasafna, Borgartúni 37, Reykjavík, 5. hæð og stendur frá klukkan 9:30 til 12.

Þetta er sams konar kynning og við buðum upp á í janúar og febrúar síðastliðnum, en þá komust ekki allir að sem vildu. Fjallað verður um uppbyggingu nýja kerfisins, notkun þess, leitir í því og boðið upp á umræður og fyrirspurnir. Vinsamlegast tilkynnið þátttöku á skráningarsíðu okkar eða í síma 514 5050. Hámarksfjöldi þátttakenda er 25.

 

horizontal

fblikebutton_dynamic_block