2

Main content

main

Lokun Gegnis og leitir.is vegna kerfisflutninga

Vegna flutnings tölvukerfa Gegnis og leitir.is til Þekkingar ehf. verður kerfunum lokað á sunnudagskvöld 1. apríl. Áætlað er að að kerfin verði komin í fulla notkun aftur í síðasta lagi um hádegi þriðjudaginn 3. apríl. Leitir.is verður að mestu opinn með takmarkaðri virkni allan tímann. Þannig verður hægt að leita á leitir.is en upplýsingar og þjónustur verða takmarkaðar. Þjónustur tengdar innskráningu verða óaðgengilegar, þ.e.a.s. innskráning, millisafnalán og frátektir. Einnig verður ekki mögulegt að sjá upplýsingar um staðsetningu og eintök. Reynt verður að vísa gegnir.is yfir á leitir.is á meðan á flutningnum stendur.

horizontal

fblikebutton_dynamic_block