Main content
main
![](https://landskerfi.is/sites/default/files/styles/big_image_to_gallery/public/news/millisafnalan_700x343.jpg?itok=2OP4JNuD)
Millisafnalán, tölfræði fyrir 2019
Talning útlána í árslokatölfræði Gegnis hefur hingað til ekki náð utan um lán sem eiga uppruna sinn í millisafnalánaþætti Gegnis. Nú hafa verið unnar skýrslur yfir gögn sem hafa verið lánuð til eða fengin að láni frá öðrum söfnum í gegnum millisafnalánaþátt Gegnis. Þetta á bæði við um lán á milli aðildarsafna Gegnis sem og söfn sem eru utan kerfisins en það eru fyrst og fremst erlend bókasöfn. Á síðasta ári var millisafnalánaþátturinn notaður hjá 6 háskólum, 9 almenningsbókasöfnum og einum grunnskóla.
Skýrslurnar eru aðgengilegar innskráðum notendum á vef Landskerfis undir Tölur úr Gegni -> Árslokatölfræði -> Millisafnalán. Þar er sér skrá fyrir hvern háskóla og Landsbókasafn Íslands en síðan eru almennings- og grunnskólasöfn flokkuð saman í einum lista.
horizontal
print-links
![Printer-friendly version Printer-friendly version](https://landskerfi.is/sites/all/modules/contrib/print/icons/print_icon.png)