Main content
main
Ný virkni í leitir.is
25.02.2013
Nýr þjónustupakki hefur verið settur upp fyrir leitir.is. Meðal helstu nýjunga sem að notanda snúa má nefna:
• | Hægt er skrá sig inn beint úr flipunum "notendaumfjöllun" og "staðsetning & frátektir" (þegar smellt hefur verið á plúsinn) |
• | Stikan "Velja bókasafn" fylgir með þegar skrunað er niður safnalistann undir "staðsetning og frátektir" |
• | Hægt er að stökkva á ákveðna síðu leitarniðurstaðna (efst/neðst til hægri) |
• | Lagfæringar á FRBR færslum. Hægt er að smella á titilinn, myndina og "Skoða X útgáfur" til að sjá allar færslur sem hafa verið hópaðar saman |
• | Heiti hnappa í millisafnalánaformi hafa verið þýdd á íslensku |
• | Útgefandi/dreifingaraðili birtist í fullri færslu FRBR niðurstaðna ("Skoða X útgáfur") í fræðigreinaflipa |