2

Main content

main

Nýr starfsmaður

Ásdís Huld Helgadóttir hefur verið ráðin til starfa sem þjónustustjóri hjá Landskerfi bókasafna hf. og mun hún hefja störf í lok júlí 2012. Hún tekur við starfi þjónustustjóra af Telmu Rós Sigfúsdóttur sem hefur tekið að sér umsjón leitir.is.

Ásdís Huld útskrifaðist úr bókasafns- og upplýsingafræði frá Háskóla Íslands árið 2000. Frá þeim tíma hefur hún starfað á Bókasafni Hafnarfjarðar þar sem hún hefur haft umsjón með tölvu- og tæknimálum safnsins auk þess að sinna vefumsjón og upplýsingaþjónustu. Ásdís hefur víðtæka þekkingu og reynslu af bókasafnakerfinu Gegni.

Telma Rós hefur starfað hjá Landskerfi bókasafna frá árinu 2006. Auk þess að vera menntuð sem bókasafns- og upplýsingafræðingur er hún með kennaramenntun.

horizontal

fblikebutton_dynamic_block