Main content
main
![](https://landskerfi.is/sites/default/files/styles/big_image_to_gallery/public/news/ny_frett_1_2.png?itok=5ZTH5HTM)
Nýr starfsmaður hjá Landskerfi
16.09.2021
Bríet Pálsdóttir hefur hafið störf sem verkefnastjóri hjá Landskerfinu. Áður starfaði hún í 14 ár hjá Advania, sem ráðgjafi og verkefnastjóri í veflausnum og síðar sem deildarstjóri vefverslana. Á árunum 2005 til 2007 starfaði Bríet við skjalastjórnun hjá Kópavogsbæ og Intrum á Íslandi. Bríet er með BA gráðu í bókasafns- og upplýsingafræði frá Háskóla Íslands.
Landskerfið mun njóta góðs af umfangsmikilli þekkingu Bríetar á vefmálum við innleiðingu nýs bókasafnskerfis þar sem hún mun stýra uppsetningu nýs viðmóts almennings fyrir leitir.is (Primo VE) og samþættingu þess við nýja bókasafnskerfið (Alma) og önnur kerfi.
horizontal
print-links
![Printer-friendly version Printer-friendly version](https://landskerfi.is/sites/all/modules/contrib/print/icons/print_icon.png)