2

Main content

main

Nýr vefur gegnir.is

Landskerfi bókasafna er stolt af því að kynna til sögunnar endurhannaðan og betrumbættan vef gegnir.is.

Meginmarkmið með endurgerð gegnir.is var að gera vefinn sem aðgengilegastan og nytsamlegastan fyrir almenna notendur bókasafna. Útbúin var ný ásýnd á vefinn og öll virkni hans yfirfarin og endurbætt. Er það von okkar að vel hafi tekist til.

Rétt er að árétta að leitarvefurinn er hluti af bókasafnakerfinu Aleph 500 útgáfu 18, sem setur nokkrar skorður hvað virkni vefsins varðar.

Unnið er að undirbúningi þess að fá aðgengisvottun frá fyrirtækinu Sjá ehf. og Öryrkjabandalaginu um að gegnir.is vefurinn standist kröfur um aðgengi fyrir fatlaða. Aðgegnisvottun er í samræmi við stefnu stjórnvalda um opinbera vefi.

Áfram verður unnið að almennu viðhaldi og endurbótum á gegnir.is um ókomna framtíð. Senda má ábendingar og athugasemdir um það sem betur má fara á netfangið hjalp hja landskerfi.is.

Meira um nýr gegnir.is.

horizontal

fblikebutton_dynamic_block