2

Main content

main

Skráningarhandbók Gegnis

Nú liggur skráningarhandbók Gegnis fyrir í veftæku formi. Í tilkynningu frá ritstjórn hennar segir: "Handbók skrásetjara Gegnis er nú aðgengileg á slóðinni http://hask.bok.hi.is. Handbókin birtist eingöngu á vef. Efninu er skipað í fjóra meginkafla – um kerfið, marksniðið, skráningarreglur og hjálpargögn. Handbókin verður í stöðugri þróun og efni birt jafnóðum og ritstjórn hefur gengið frá því. Líta ber á þessa fyrstu gerð sem frumdrög og tilraunaútgáfu. ( . . . ) Leiðréttingar eru vel þegnar, sömuleiðis ábendingar um efni á hask@bok.hi.is." Ritstjórnina skipa þær Hildur Gunnlaugsdóttir, Hólmfríður Sóley Hjartardóttir og Monika Magnúsdóttir.

horizontal

fblikebutton_dynamic_block