2

Main content

main

Spurningakönnun námsmanns á gegnir.is

Á gegnir.is er nú að hefjast spurningakönnun, á vegum Hildar Fjólu Svansdóttur, sem er nemandi við hinn konunglega skóla í bókasafns- og upplýsingafræðum í Álaborg, Danmörku. Markmiðið er að kanna möguleika á svokölluðum nýjum þjónustuþáttum og þróunarmöguleikum, hér með hliðsjón af gegnir.is.

Um er að ræða gagnaöflun fyrir námsritgerð Hildar Fjólu. Könnunin er hýst á dönsku vefsvæði en spurningarnar eru allar á íslensku.

Könnunin er gerð með góðfúslegu leyfi Landskerfis bókasafna hf., en er ekki á vegum fyrirtækisins. Hún mun standa fram til næstu viku.

horizontal

fblikebutton_dynamic_block