2

Main content

main

Þjónustusamningur við Rekstrarfélag Sarps

Landskerfi bókasafna hf. (LB) og Rekstrarfélag Sarps (RS) hafa gengið frá þjónustusamningi sem gildir til tveggja ára frá og með 1. september næstkomandi.
Á grunni samstarfsins tekur LB að sér umsjón með daglegum rekstri RS og fagstjóri Sarps tekur til starfa með aðstöðu í húsakynnum LB.

Markmið samstarfsins er að ná fram:

auknu gæðaeftirliti með skráningu í Sarp,
öflugri notendaþjónustu fyrir Sarp,
auknu aðgengi almennings að gögnum í Sarpi með því að gera þau aðgengileg í gegnum leitir.is, auk
samræmingar í skráningu ólíks safnskosts til lengri tíma litið.

RS er opinber aðili í eigu fjölmargra safna og stofnana í eigu ríkis og sveitarfélaga s.s. Þjóðminjasafns Íslands, byggðasafna og annarra safna og stofnana sem varðveita heimildarsöfn. Félagið á og rekur gagnasafnið Sarp.

horizontal

fblikebutton_dynamic_block