2

Main content

main

Tilkynning: Gegnir verður lokaður fram eftir þriðjudagsmorgni 10. apríl

Um nokkra hríð hefur verið unnið að undirbúningi vegna útgáfu nýs biðlara fyrir Gegni. Uppfærslan er tilkomin vegna þjónustupakka sem leiðréttir og uppfærir miðlægan hugbúnað bókasafnskerfisins.

Vegna uppfærslunnar verður bæði starfsmannaaðgangur Gegnis og gegnir.is lokaður frá kvöldi mánudagsins 9. apríl og fram eftir morgni þriðudaginn 10. apríl.

Upplýsingar um uppfærslu biðlarans verða sendar út á póstlista Landskerfis bókasafna hf. að morgni þriðjudags. Ef starfsfólk lendir í vandamálum við uppfærsluna, er þeim bent á að hafa samband við skrifstofu Landskerfis bókasafna hf.

Um leið og við óskum ykkur gleðilegra páska biðjumst við velvirðingar á þessum óþægindum.

horizontal

fblikebutton_dynamic_block