2

Main content

main

Um notendanöfn og lykilorð

Á notendaráðstefnu Aleflis sem haldin var 24. maí síðastliðinn voru kynntar breytingar á meðhöndlun kennitalna í Gegni, sjá glærur.

Breytingarnar varða úthlutun notandanafna og lykilorða til lánþega vegna innskráningar á leitir.is og gegnir.is. Breytingarnar eru gerðar til að tryggja öryggi persónuupplýsinga lánþega.

Helstu atriði eru:

• Lánþegar ættu helst ekki að nota kennitölu sem notandanafn við innskráningu á vefi
• Skylt er að upplýsa lánþega um að hann hafi val um hvaða notandanafn hann notar við innskráningu
• Lánþegar mega alls ekki nota hluta af kennitölu sem lykilorð
• Reiturinn „Strikamerki“ má ekki lengur innihalda kennitölu

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Landskerfi bókasafna mun keyra inn ný strikamerki þar sem kennitala er í strikamerkisreit og breyta lykilorðum, séu þau kennitala eða hluti af kennitölu. Verkið verður að mestu leyti unnið á haustdögum og kynnt nánar í sumar og í haust.

horizontal

fblikebutton_dynamic_block