2

Main content

main

Upptökur af kennsluefni

Landskerfi bókasafna kynnir nýjungar í miðlun kennslu.

Kennsluefni hefur verið tekið upp og gert aðgengilegt á margmiðlunarformi á þjónustuvef Landskerfis bókasafna. Með þessum hætti geta starfsmenn bókasafna bætt við eða rifjað upp þekkingu sína á Gegni hvar og hvenær sem er. Einnig ætti þessi nýjung að geta komið nýjum starfsmönnum bókasafna að góðum notum. Skjáupptökurnar eru stuttar, aðgengilegar og sýna á einfaldan hátt ýmsar aðgerðir í Gegni.

Til að byrja með tekur kennsluefnið til aðgerða í útlánaþætti Gegnis en smám saman munu bætast við leiðbeiningar úr öðrum þáttum kerfisins. Kennsluefnið er að finna á þjónustuvef.

horizontal

fblikebutton_dynamic_block