Main content
Fréttir
main
Um leið og við óskum samstarfsfólki og velunnurum okkar friðar á jólum og farsældar á nýju ári, vekjum við athygli á að skrifstofa Landskerfis bókasafna verður lokuð 24. og 31. desember.
Þökkum ánægjulega samvinnu á árinu sem er að líða.
Bókabílar Borgarbókasafns Reykjavíkur eru nú komnir í beinlínusamband við Gegni. Samskiptin fara fram með 3G tækninni, sem er svokölluð þriðja kynslóð farsímatækninnar. Borgarbókasafnið er fyrsta stofnun Reykjavíkurborgar, sem tekur 3G tæknina í sína þjónustu.
Landskerfi bókasafna hf. hefur hlotið vottun frá fyrirtækinu Sjá ehf og Öryrkjabandalaginu um að www.gegnir.is standist vottun fyrir forgang 2 um aðgengi fyrir fatlaða. Þetta er í samræmi við stefnu stjórnvalda um opinbera vefi og aðgengisstefnu okkar vegna gegnir.is.
Fundargerðir Skráningarráðs eru birtar á vef ráðsins, sem er staðsettur vinstra megin á heimasíðu Landskerfisins. Síðasti fundur ráðsins, sá fertugasti og fyrsti, var haldinn um miðjan októbermánuð.
Landskerfi bókasafna auglýsir eftir kerfisbókaverði til afleysinga á árinu 2009.
Nánari upplýsingar um starfið er að finna á heimasíðu Hagvangs.
Umsóknarfrestur um starfið er til og með 30. nóvember næstkomandi.
Glærur frá fræðslufundi skrásetjara, sem haldinn var 9. október síðastliðinn hafa verið settar á vef Skráningarráðs
Á landsfundi Upplýsingar 10. - 11. október 2008, kynnti framkvæmdastjóri Landskerfis bókasafna til sögunnar verkefni sem félagið er að hrinda af stokkunum í samvinnu við Landsbókasafn-Háskólabókasafn, Borgarbókasafn Reykjavíkur, aðildarsöfn Gegnis auk erlendra aðila.
Hér er að finna kynninguna frá Landsfundinum Þarfagreining - „Integrated Search System for Iceland“
Landskerfi bókasafna býður skólabókavörðum upp á þá þjónustu að mynda lánþegaréttindi vélrænt í kerfinu fyrir alla nemendur og starfsmenn skólans. Einnig er hægt að uppfæra bekkjarupplýsingar. Nánari leiðbeiningar er að finna á þjónustuvef.
Útbúinn hefur verið nýr leiðbeiningabæklingur fyrir gegnir.is. Bæklingurinn tekur mið af breytingum sem urðu þegar ný útgáfa af vefnum var tekinn í notkun um miðjan júnímánuð. Bæklingnum verður dreift til aðildarsafna Gegnis í byrjun ágúst. Nánar verður gert grein fyrir málinu í tölvuskeyti sem sent verður á póstlista Landskerfisins.