Main content
main
![](https://landskerfi.is/sites/default/files/styles/big_image_to_gallery/public/news/aramot.jpg?itok=aR0O_Ja4)
Viðhald um áramót – takmörkuð þjónusta á leitir.is
30.12.2020
Vegna kerfisvinnu verður Gegnir lokaður yfir áramótin. Kerfið verður tekið niður kl. 15:00 á gamlársdag og síðan verður það opnað aftur á nýársdag. Lokunin mun ekki hafa áhrif hefðbundna vinnu í Gegni en upplýsingar og þjónustur á leitir.is verða takmarkaðar. Lokað verður fyrir innskráningu, millisafnalán og frátektir. Einnig verður ekki mögulegt að sjá upplýsingar um stöðu eintaka. Athugið að ekki verður mögulegt að skrá sig inn í Rafbókasafnið á meðan á lokuninni stendur.
Gleðilegt nýtt ár og takk fyrir frábært samstarf á árinu.
horizontal
print-links
![Printer-friendly version Printer-friendly version](https://landskerfi.is/sites/all/modules/contrib/print/icons/print_icon.png)