Main content
main
Minniblað fyrir skráningu í Myndaskrá
Cecilie Gaihede og Þorvaldur Böðvarsson, haust 2019.
Inngangur:
Þessar leiðbeiningar eiga við um skráningu aðfanga í Myndasnið og fjalla um helstu aðgerðir tengdar skráningu ljósmynda.
- Þegar skráning er hafin er smellt á aðföng -> Myndir. Þá birtist yfirlitsgluggi með tilheyrandi undirskrám. Þá er smellt á „STOFNA FÆRSLU“
- Hraðskráningarsnið er hér valið ef við á (Ef hraðskráningarsnið er valið, má lesa nánar um það í Minnisblað fyrir stofnun Hraðskráningarsniðs). Skráð er í opna tölureitinn „Fjöldi“ ef verið er að skrá ákveðinn fjölda aðfanga í einu. Síðan er smellt á „Samþykkja“. Sjá mynd til útskýringar:
![](https://landskerfi.is/sites/default/files/ljosmyndmynd1.png)
Í kjölfarið birtist aðfangasniðið
1) Tengja myndir/skjöl/teikningar
- Mælt er með að byrja skráningu með að tengja og hlaða upp myndir/skjöl. Eingöngu er hægt að tengja eina mynd í myndagluggann. Ef þörf er á að tengja fleiri myndir, t.d. sýna bakhlið mynda er ráðlagt að hlaða þeirri mynd upp sem skjali.
- Til að tengja mynd/skjal við skráninguna er smellt á „Hlaða upp mynd/skjali“ -> síðan „Choose file“ velja síðan myndina smella á „Open“ og síðan „Samþykkja.“ Ef vill er hægt er fylla út viðeigandi upplýsingar um rafræna mynd/skjal.
![](https://landskerfi.is/sites/default/files/ljosmyndmynd2.png)
2) Grunnupplýsingar
- Hér er fyllt út eins ítarlega og hægt er upplýsingum um myndina sem verið er að skrá. Mælt er með að renna ítarlega yfir alla skráningarmöguleikana.
- Lágmarksskráningar til að geta vistað aðfangasnið eru: Undirskrá: Safnnúmer, Tegund (mikilvægt) Sjá mynd:
![](https://landskerfi.is/sites/default/files/ljosmyndmynd3.png)
- Mikilvægt atriði er að velja í reitinn „Staða skráningar.“ Skráning á að uppfylla ákveðinn skilyrði til að standast kröfur um gæði skráningar.
![](https://landskerfi.is/sites/default/files/ljosmyndmynd4.png)
- Til að nálgast ítarlegri upplýsingar um ákveðin skráningaratriði og nákvæmari lýsingar á skráningarreitunum er mælt með að skoða kafla VII. Myndir í Skráningarhandbók Sarps 2.0 sem hægt er að nálgast á þjónustuvefinn landskerfi.is
![](https://landskerfi.is/sites/default/files/ljosmyndmynd5.png)
--> Þjónustuvef Landskerfis Bókasafna
- Þegar búið er fylla út reitina eftir bestu getu er fín regla að ýta síðan á „Vista“
3) Aðrar upplýsingar
- Hér er mikilvægt að skrá í frjálsa textareitinn allar nánari upplýsingar um myndina sem vitað er um og lýsa myndefninu. Gott er að hafa það í huga að reitirnir „Lýsing“ og „Heimildir“ eru reitir sem birtast á ytri vef sarpur.is ef valið er að birta myndina þar. (Til upplýsingar birtist reiturinn „Sýningartexti“ sömuleiðis á ytri vef en er einungis notaður í undantekningartilvikum.)
![](https://landskerfi.is/sites/default/files/ljosmyndmynd6.png)
![](https://landskerfi.is/sites/default/files/ljosmyndmynd7.png)
- Það þarf því að gæta þess með almenning í huga að textinn í þessum reitum sé vel unnin og lýsandi fyrir myndina.
- Síðan er smellt á „Vista“
![](https://landskerfi.is/sites/default/files/ljosmyndmynd8.png)
print-links
![Printer-friendly version Printer-friendly version](https://landskerfi.is/sites/all/modules/contrib/print/icons/print_icon.png)