2

Main content

main

Minnisblað fyrir skráningu Bóka

Cecilie Gaihede og Þorvaldur Böðvarsson, haust 2019.


Inngangur:

Þessar leiðbeiningar eiga við um skráningu aðfanga í Bókaskrá og fjalla um helstu aðgerðir tengdar skráningu bóka í Sarpi.


Skrá Bók:

  1. Þegar skráning er hafin er smellt á Aðföng -> Bækur. Þá birtist yfirlitsgluggi með tilheyrandi undirskrám. 
  2. Þá er smellt á „STOFNA FÆRSLU“ 
  3. Síðan er hraðskráningarsnið valið hér ef við á (Ef hraðskráningarsnið er valið, má lesa nánar um það í Minnisblað fyrir stofnun Hraðskráningarsniðs). Skráð er í opna tölureitinn „Fjöldi“ ef verið er að skrá ákveðinn fjölda aðfanga í einu. Síðan er smellt á „Samþykkja“.  Sjá mynd: 

 

Í kjölfarið birtist aðfangasniðið

 


Næstu skref: 

Mælt er með að byrja skráningu með að tengja og hlaða upp í „myndir/skjöl/teikningar“. Hægt er að tengja eins margar myndir og þarf. 

  • Til að tengja mynd/skjal/teikningu við skráninguna er smellt á „Hlaða upp mynd/skjali/teikningu“  Sjá mynd: 

 

Skráning mynda: 

  1. Velja „Choose file“ 
  2. Velja síðan myndina, smella svo á „Open“ 
  3. Að lokum er smellt á „Samþykkja.“ Ef vill er hægt er fylla út viðeigandi upplýsingar um rafræna mynd/skjal/teikningu.   

 

 

Grunnupplýsingar

  • Hér eru upplýsingar um bókina settar inn eins ítarlega og hægt er. Mælt er með að renna vel yfir alla skráningarmöguleikana í aðfangasniðinu. 
  • Lágmarksskráningar til að geta vistað aðfangasnið eru: Undirskrá, Safnnúmer, Titill og Fjöldi.
  • Til að nálgast ítarlegri upplýsingar um ákveðin skráningaratriði og nákvæmari lýsingar á skráningarreitunum er mælt með að skoða kafla I. Bækur í Skráningarhandbók Sarps 2.0 sem hægt er að nálgast á þjónustuvefnum á landskerfi.is. 
  • Síðan er smellt á „Vista“. Sjá mynd: 

 

 

Aðrar upplýsingar

  • Hér er mikilvægt að skrá í frjálsu textareitina allar nánari upplýsingar um bókina sem vitað er um Þær grunnupplýsingar sem gera bókina að safngrip.

 

  • Gott er að hafa það í huga að reitirnir „Lýsing“ „Sýningartexti“ og „Heimildir“ eru reitir sem birtast á ytri vef sarpur.is ef valið er að birta bókina þar. Það þarf því að gæta þess með almenning í huga að textinn í þessum reitum sé vel unnin og lýsandi fyrir bókina.
  • Síðan er smellt á „Vista“