2

Main content

main

Minnisblað fyrir skráningu Myntir/Seðlar

Cecilie Gaihede og Þorvaldur Böðvarsson, haust 2019.


Inngangur:

Þessar leiðbeiningar eiga við um skráningu aðfanga í Mynta-/ Seðlaskrá og fjalla um helstu aðgerðir tengdar skráningu myntir/seðlar  í Sarpi.

 

Skrá Mynt/Seðill:

  1. Þegar skráning er hafin er smellt á Aðföng -> Myntir/Seðlar. Þá birtist yfirlitsgluggi með tilheyrandi undirskrám.
  2. Þá er smellt á „STOFNA FÆRSLU“
  3. Síðan er hraðskráningarsnið hér valið ef við á (Ef hraðskráningarsnið er valið, er lesa nánar um það í Minnisblað fyrir stofnun Hraðskráningarsniðs). Skráð er í opna tölureitinn „Fjöldi“ ef verið er að skrá ákveðinn fjölda aðfanga í einu. Síðan er smellt á „Samþykkja“.  Sjá mynd:

 

Í kjölfarið birtist aðfangasniðið

 


Næstu skref:

Mælt er með að byrja skráningu með að tengja og hlaða upp mynd/skjali/teikningu. Hægt er að tengja eins margar myndir og þarf.

  • Til að tengja mynd/skjal/teikningu við skráninguna er smellt á „Hlaða upp mynd/skjali/teikning“  Sjá mynd

 

 

Skráning mynda:

  1. Velja „Choose file“
  2. Velja síðan myndina smella á „Open“
  3. Að lokum velja „Samþykkja.“ Ef vill er hægtað fylla út viðeigandi upplýsingar um rafræna mynd/skjal/teikningu.

 

 

Grunnupplýsingar

  • Hér eru upplýsingar um aðfangið settar inn eins ítarlega og hægt er. Mælt er með að renna vel yfir alla skráningarmöguleikana í aðfangasniðinu.
  • Lágmarksskráningar til að geta vistað aðfangasnið eru: Undirskrá og Safnnúmer
  • Til að nálgast ítarlegri upplýsingar um ákveðin skráningaratriði og nákvæmari lýsingar á skráningarreitunum er mælt með að skoða kafla IX: Mynt í Skráningarhandbók Sarps 2.0 sem hægt er að nálgast á þjónustuvefnum á landskerfi.is.
  • Síðan er smellt á „Vista“. Sjá mynd:

 


Aðrar upplýsingar

  • Hér er mikilvægt að skrá í frjálsa textareitinn allar nánari upplýsingar um aðfangið sem vitað er um.

 

  • Gott er að hafa það í huga að reitirnir „Lýsing“ „Sýningartexti“ og „Heimildir“ eru reitir sem birtast á ytri vef sarpur.is ef valið er að birta aðfangið þar. Það þarf því að gæta þess með almenning í huga að textinn í þessum reitum sé vel unnin og lýsandi fyrir myntina/seðlana.
  • Síðan er smellt á „Vista“  sjá mynd: