Main content
main
Samið um efnisorðalykil
22.01.2004
Landskerfi bókasafna og Landsbókasafn Íslands - Háskólabókasafn annars vegar og höfundar Kerfisbundins efnisorðalykils fyrir bókasöfn og upplýsingamiðstöðvar hins vegar hafa undirritað samning um að nota megi efnisorðalykilinn í bókasafnskerfið Gegni. Notkun samræmds efnisorðalykils er mikilvæg forsenda þess að unnt verði að samræma skráningu efnisorða í kerfið, en slíkt samræmi auðveldar til muna alla leit eftir efnisorðum. Efnisorðalykillinn hefur áður komið út í prentuðu formi en verður nú þróaður áfram í rafrænni gerð sem verður aðgengileg úr Gegni. Höfundar Kerfisbundins efnisorðalykils eru þær Þórdís T. Þórarinsdóttir og Margrét Loftsdóttir.
horizontal
print-links
![Printer-friendly version Printer-friendly version](https://landskerfi.is/sites/all/modules/contrib/print/icons/print_icon.png)