2

Main content

main

Frá aðalfundi Landskerfis bókasafna

Aðalfundur Landskerfis bókasafna hf. var haldinn 23. maí 2012. Störf fundarins voru með hefðbundnum hætti. Á fundinn mættu fulltrúar 8 hluthafa sem eiga samanlagt 88,75% hlutafjár í félaginu.
Hér má nálgast fundargerð aðalfundar. Skýrsla stjórnar fyrir síðasta starfsár er væntanleg á vefinn.

Stjórn félagsins var endurkjörin á fundinum. Starfsárið 2012-2013 sitja því í stjórn: Anna Torfadóttir borgarbókavörður, Árni Sigurjónsson skrifstofustjóri forsetaembættisins, Ingibjörg Steinunn Sverrisdóttir landsbókavörður og Karl Guðmundsson bæjarritari Akureyrarbæjar. Varamenn eru: Hulda Björk Þorkelsdóttir forstöðumaður Bókasafns Reykjanesbæjar og Eiríkur Þorláksson, sérfræðingur á skrifstofu menningarmála hjá menntamálaráðuneytinu.
Stjórnin hefur kjörið Árna Sigurjónsson sem formann sinn.

horizontal

fblikebutton_dynamic_block