2

Main content

main

Tilkynning: Gegnir hefur verið opnaður að nýju

Vegna kerfisvinnu var Gegnir lokaður meginhluta föstudagsins 15. júní. Það var verið að setja upp þjónustupakka sem eru að jafnaði settir upp tvisvar á ári. Hlutverk þjónustupakka er fyrst og fremst að lagfæra villur í virkni kerfisins. Að þessu sinni voru settar inn um 150 breytingar en þær breytingar sem standa upp úr hafa með prentun og tölvupóst að gera, þ.e.a.s. það er búið að lagfæra að ákveðnar tilkynningar prentist á mörg blöð, leiðrétta prentun strikamiða, leiðrétta að íslenskir stafir birtist rétt í efnislínu tölvupósts og fleira. Nauðsynlegt er að uppfæra starfsmannaðgang kerfisins með “version check” áður byrjað er að vinna í kerfinu, sjá leiðbeiningar á þjónustuvef.

horizontal

fblikebutton_dynamic_block